Umhverfis- og skipulagsráð:
Afgreiðslur byggingarfulltrúa
10.Ágúst'17 | 07:24Í júlí óskaði Georg Arnarson, fulltrúi Eyjalistans í umhverfis- og skipulagsráði eftir eftir skýringum á reglum um það hvað byggingarfulltrúi má og hvað ekki. Á síðasta fundi ráðsins var málið aftur tekið upp.
Í bókun ráðsins kemur fram að í 8 gr. Mannvirkjalaga er fjallað um embætti byggingarfulltúra. Byggingarfulltrúi fjallar um byggingarleyfisumsóknir og fer með þau verkefni sem mælt er fyrir um í lögum nr. 160/2010 um mannvirki og ákvæðum í þeim reglugerðum sem settar eru á grundvelli laganna, þar á meðal útgáfu byggingarleyfa. Hann hefur eftirlit með því að mannvirkjagerð sé í samræmi við útgefin leyfi og gildandi skipulag.
Umhverfis- og skipulagsráðs annast verkefni byggingarnefndar og fjallar um byggingarleyfisumsóknir samkvæmt samþykkt um afgreiðslur byggingarnefndar Vestmannaeyja nr. 991 frá 2012. Samkvæmt 3. gr. samþykktar skal Byggingarfulltrúi leita samþykkis umhverfis- og skipulagsráðs áður en byggingarleyfi er veitt, varði breyting á mannvirki útlit þess og form nema breyting sé óveruleg, sbr. 5. mgr. 9. gr. laga um mannvirki.

Ég vil gerast félagsmaður í Krabbavörn
17.September'19Hver félagsmaður skiptir félagið miklu máli. Ef þið hafið áhuga á að gerast félagsmenn þá endilega fyllið út eyðublaðið (smelltu hér). Krabbavörn er góðgerðarfélag sem styður við og styrkir þá félagsmenn sem greinast með krabbamein og eiga lögheimili í Vestmannaeyjum. Ár hvert leita u.þ.b. 10 nýir einstaklingar til félagsins eftir styrkjum og um 25 einstaklingar fá einhverskonar fjárstuðning frá félaginu á hverju ári. Árgjaldið er aðeins kr. 2500,-

Fréttaskot - Eyjar.net
31.Janúar'18Ertu með athyglisverða ábendingu eða frétt?
Sendu okkur línu á eyjar@eyjar.net - Fyllsta trúnaðar gætt.

Smáauglýsingar
Hér getur þú með einföldum hætti auglýst það sem þú þarft að koma á framfæri allt frá einum sólarhring uppí einn mánuð. Einfaldur greiðslumáti Þú greiðir fyrir auglýsinguna með kreditkorti. Verð kr. 500,- per sólarhring. Um auglýsinguna Stutt fyrirsögn, hámark 35 tákn. Hnitmiðaður texti, hámark 130 tákn. Mynd á JPG sniði, verður sköluð í 130x100 díla (pixel).

Smáauglýsingar
Hér getur þú með einföldum hætti auglýst það sem þú þarft að koma á framfæri allt frá einum sólarhring uppí einn mánuð. Einfaldur greiðslumáti Þú greiðir fyrir auglýsinguna með kreditkorti. Verð kr. 500,- per sólarhring. Um auglýsinguna Stutt fyrirsögn, hámark 35 tákn. Hnitmiðaður texti, hámark 130 tákn. Mynd á JPG sniði, verður sköluð í 130x100 díla (pixel).