Akranes má ekki sigla á Þjóðhátíð
25.Júlí'17 | 22:12Samgöngustofa hefur hafnað beiðni Eimskips um að fá að sigla ferjunni Akranesi til Vestmannaeyja um verslunarmannahelgina. Akranesferjan hefur verið í tilraunasiglingum milli Akraness og Reykjavíkur í sumar.
Sótt var um tímabundna undanþágu svo ferjan gæti siglt á milli lands og eyja en henni var hafnað. Elliði Vignisson, bæjarstjóri í Vestmannaeyjum, undrast þessa ákvörðun Samgöngustofu en hann var í viðtali hjá Huldu og Hvata í Magasíninu á K100.
„Ég myndi alveg skilja að settar yrðu ákveðnar kröfur, til dæmis að ákveðin takmörk yrðu sett og að ferjan mætti ekki sigla í ákveðinni ölduhæð eða með ákveðið marga farþega eða eitthvað svoleiðis. En stjórnsýslustofnanir verða að gæta meðalhófs í framgöngu sinni og átta sig á því að ákvarðanir sem þessar geta valdið alveg gríðarlegum skaða.“
Elliði sagðist ekki einu sinni hafa ímyndundarafl til að skilja þessa ákvörðun Samgöngustofu.
„Af því að hafsvæði á milli Akraness og Reykjavíkur, sem verið er með skipið til tilrauna á, er hafsvæði C. Hafsvæðið milli Vestmannaeyja og Landeyjahafnar er líka hafsvæði C og hér er hugmynd um að gera tilraun hvernig þessi bátur kæmi út í svona flutningum með fólk á milli lands og eyja og vitað er að álagið verður þó nokkuð. Af hverju þá ekki að gera þá tilraun og nota þetta skip sem er í landi og eigendur vilja brúka?“
Ekki fengust upplýsingar um ástæður þessarar synjunar hjá Samgöngustofu í dag en hér má hlusta á viðtalið í heild.

Mannlíf og saga - hlaðvarp
2.Mars'21Fylgstu með hlaðvarpinu Mannlíf og saga. Nýr þáttur kemur út á hverjum fimmtudegi og er hlaðvarpið aðgengilegt hér á Eyjar.net og einnig á helstu veitum, svo sem Spotify. Sjá nánar hér...
Má bjóða þér að auglýsa hér?
23.Júní'22Hér má auglýsa allt milli himins og jarðar! Sendu línu á auglysingar@eyjar.net og saman finnum við lausn sem hentar þér.

Fáðu nýjustu fréttirnar beint í æð
10.September'18Með því að fylgja Eyjar.net færðu nýjustu fréttirnar frá Eyjum beint í æð. Smelltu hér til að fara á facebook-síðu Eyjar.net.