Miðasala Herjólfs undir Sæferðir
5.Júlí'17 | 12:10Eimskip hefur sameinað miðasölu fjögurra ferja undir einu merki. Að sögn Ólafs William Hand, upplýsingafulltrúa Eimskips, var þetta gert til hagræðingar fyrir ferðamenn.
Ferjurnar fjórar eru: Herjólfur, Baldur, Særún og Akranes. Eimskip á félagið Sæferðir sem rekur Baldur, Særúnu og Akranes en Eimskip er áfram rekstraraðili Herjólfs. Ólafur segir segir í samtali við mbl.is miðasölu hafa verið ruglingslega fyrir erlenda ferðamenn og því hafi verið tekin ákvörðun um það að einfalda söluferlið.
„Það er verið að sameina fjórar ferjur undir einu merki til þess að einfalda miðasölu“, segir Ólafur og bætir við að engar breytingar hafi átt sér stað á rekstrarfyrirkomulagi fyrirtækjanna. Herjólfur heyrir því aðeins undir Sæferðir þegar kemur að miðasölu.
Ólafur segir heimasíðu Sæferða einnig notendavænni og nútímalegri en heimasíðu Herjólfs. „Við vonumst til þess að þetta hjálpi farþegum og einfaldi ferlið“, segir Ólafur að lokum.

Ég vil gerast félagsmaður í Krabbavörn
17.September'19Hver félagsmaður skiptir félagið miklu máli. Ef þið hafið áhuga á að gerast félagsmenn þá endilega fyllið út eyðublaðið (smelltu hér). Krabbavörn er góðgerðarfélag sem styður við og styrkir þá félagsmenn sem greinast með krabbamein og eiga lögheimili í Vestmannaeyjum. Ár hvert leita u.þ.b. 10 nýir einstaklingar til félagsins eftir styrkjum og um 25 einstaklingar fá einhverskonar fjárstuðning frá félaginu á hverju ári. Árgjaldið er aðeins kr. 2500,-

Fréttaskot - Eyjar.net
31.Janúar'18Ertu með athyglisverða ábendingu eða frétt?
Sendu okkur línu á eyjar@eyjar.net - Fyllsta trúnaðar gætt.

Mannlíf og saga - hlaðvarp
2.Mars'21Nýtt hlaðvarp/podcast fer í loftið á fimmtudaginn 4. mars nk. Nýr þáttur kemur út á hverjum fimmtudegi og verður hlaðvarpið aðgengilegt á Eyjar.net ásamt helstu veitum svo sem Spotify og Youtube. Fylgstu með...

Smáauglýsingar
Hér getur þú með einföldum hætti auglýst það sem þú þarft að koma á framfæri allt frá einum sólarhring uppí einn mánuð. Einfaldur greiðslumáti Þú greiðir fyrir auglýsinguna með kreditkorti. Verð kr. 500,- per sólarhring. Um auglýsinguna Stutt fyrirsögn, hámark 35 tákn. Hnitmiðaður texti, hámark 130 tákn. Mynd á JPG sniði, verður sköluð í 130x100 díla (pixel).