Of dýrt að leigja erlenda ferju
23.Maí'17 | 06:24Vegagerðin telur að of dýrt hefði verið að leigja bílferju frá útlöndum til að leysa Vestmannaeyjaferjuna Herjólf af á meðan hann er í slipp. Þá sé ekki endilega víst að slíkar ferjur gætu siglt bæði í Landeyjahöfn og til Þorlákshafnar.
Í samningum Vegagerðarinnar við Eimskip er kveðið á um að Vegagerðin leigi skip til afleysinga þegar Herjólfur þarf að fara í slipp. Núna er Breiðafjarðarferjan Baldur notuð en hún er í eigu Eimskips.
Baldur er talsvert minna skip og hefur auk þess ekki leyfi til að sigla til Þorlákshafnar þegar ófært er í Landeyjahöfn. Það olli erfiðleikum fyrst eftir að Herjólfur sigldi af stað til Danmerkur, vegna óveðurs sem gekk yfir landið, að því er fram kemur í umfjöllun um mál þetta í Morgunblaðinu í dag.
Mbl.is sagði frá.

Ég vil gerast félagsmaður í Krabbavörn
17.September'19Hver félagsmaður skiptir félagið miklu máli. Ef þið hafið áhuga á að gerast félagsmenn þá endilega fyllið út eyðublaðið (smelltu hér). Krabbavörn er góðgerðarfélag sem styður við og styrkir þá félagsmenn sem greinast með krabbamein og eiga lögheimili í Vestmannaeyjum. Ár hvert leita u.þ.b. 10 nýir einstaklingar til félagsins eftir styrkjum og um 25 einstaklingar fá einhverskonar fjárstuðning frá félaginu á hverju ári. Árgjaldið er aðeins kr. 2500,-

Fréttaskot - Eyjar.net
31.Janúar'18Ertu með athyglisverða ábendingu eða frétt?
Sendu okkur línu á eyjar@eyjar.net - Fyllsta trúnaðar gætt.

Mannlíf og saga - hlaðvarp
2.Mars'21Nýtt hlaðvarp/podcast fer í loftið á fimmtudaginn 4. mars nk. Nýr þáttur kemur út á hverjum fimmtudegi og verður hlaðvarpið aðgengilegt á Eyjar.net ásamt helstu veitum svo sem Spotify og Youtube. Fylgstu með...

Smáauglýsingar
Hér getur þú með einföldum hætti auglýst það sem þú þarft að koma á framfæri allt frá einum sólarhring uppí einn mánuð. Einfaldur greiðslumáti Þú greiðir fyrir auglýsinguna með kreditkorti. Verð kr. 500,- per sólarhring. Um auglýsinguna Stutt fyrirsögn, hámark 35 tákn. Hnitmiðaður texti, hámark 130 tákn. Mynd á JPG sniði, verður sköluð í 130x100 díla (pixel).