Thelma nýr leikskólastjóri Kirkjugerðis
4.Maí'17 | 14:29Vestmannaeyjabær hefur ráðið Thelmu Sigurðardóttur sem leikskólastjóra Kirkjugerðis í eitt ár en hún mun taka við af Emmu H. Sigurgeirsdóttur leikskólastjóra.
Thelma lauk B.ed. í Grunnskólakennarafræði og hefur síðan bætt við sig námi m.a. í mannauðsstjórnun. Tekur hún við starfi leikskólastjóra á Kirkjugerði eftir sumarlokun leikskólans í ágúst.
Lög kveða á um að til þess að verða ráðinn leikskólastjóri við leikskóla skal umsækjandi hafa starfsheitið leikskólakennari og viðbótarmenntun í stjórnun eða kennslureynslu á leikskólastigi. Ef enginn leikskólakennari sækir um er einungis heimilt að ráða í starfið að hámarki til eins árs í senn, einstakling sem ekki er með slíka menntun, segir í tilkynningu frá Vestmannaeyjabæ.
Guðrún Sigríður ráðin aðstoðarleikskólastjóri á Víkinni
Þá hefur Guðrún Sigríður Þorsteinsdóttir hefur verið ráðin sem aðstoðarleikskólastjóri á Víkinni. Tveir sóttu um aðstoðarleikskólastjórastöðuna á Víkinni. Guðrún var ein umsækjanda með menntun leikskólakennara.
Viðhorfskönnun til samgangna og bæjarmála
2.Nóvember'18Áhugavert efni - Hér getur þú skoðað viðhorfskönnun til samgangna og bæjarmála í Vestmannaeyjum sem Eyjar.net lét gera í október 2018.
Vilt þú ná til Eyjamanna?
28.Júní'17Þá er Eyjar.net rétti staðurinn til þess. Sendu okkur línu á auglysingar@eyjar.net - og við aðstoðum þig að finna góða lausn fyrir þig og þitt fyrirtæki.
Allt fasteignir - Fasteignasalan Eldey
27.Október'17Fasteignasalan Eldey Vestmannaeyjum. Sími: 861-8901. Arndís M. Kjartansdóttir löggiltur fasteigna-, fyrirtækja- og skipasali. Goðahrauni 1. disa@alltfasteignir.is / www.alltfasteignir.is

Smáauglýsingar
Hér getur þú með einföldum hætti auglýst það sem þú þarft að koma á framfæri allt frá einum sólarhring uppí einn mánuð. Einfaldur greiðslumáti Þú greiðir fyrir auglýsinguna með kreditkorti. Verð kr. 500,- per sólarhring. Um auglýsinguna Stutt fyrirsögn, hámark 35 tákn. Hnitmiðaður texti, hámark 130 tákn. Mynd á JPG sniði, verður sköluð í 130x100 díla (pixel).