Aðgerðaráætlun í gangi
Bilun Vestmannaeyjastrengs 3 staðsett neðansjávar
- vonir standa til að viðgerð geti átt sér stað í maí
13.Apríl'17 | 08:16Undirbúningur á viðgerð vegna Vestmannaeyjastrengs 3 er í fullum í gangi. Bilanagreining á strengnum hefur farið fram og allt bendir til þess að bilunin sé staðsett neðansjávar um 6.2 km frá Eyjum.
Vinna við aðgerðaráætlun er hafin og á þriðjudaginn funduðu fullrúar Landsnets með fulltrúum frá NKT, framleiðendum strengsins, ásamt sérfræðingum á ýmsum sviðum s.s. kafara, verðurfræðingi og strengmælingarmönnum þar sem línur voru lagðar fyrir framhaldið, segir í tilkynningu frá Landsneti.
Ennfremur segir að stefnt sé að því að kafari skoði aðstæður á svæðinu eftir páska en ljóst er að það þarf sérhæft strenglagningarskip til viðgerða á strengnum – vonir standa til að viðgerð geti átt sér stað í maí en veður og sjólag getur haft mikil áhrif á tímalengd viðgerðarinnar.
Vestmannaeyjastrengur 1 sér um að flytja rafmagn til Eyja en verið að flytja aukið varaafl á svæðið.
Allt fasteignir - Fasteignasalan Eldey
27.Október'17Fasteignasalan Eldey Vestmannaeyjum. Sími: 861-8901. Arndís M. Kjartansdóttir löggiltur fasteigna-, fyrirtækja- og skipasali. Goðahrauni 1. disa@alltfasteignir.is / www.alltfasteignir.is
Viðhorfskönnun til samgangna og bæjarmála
2.Nóvember'18Áhugavert efni - Hér getur þú skoðað viðhorfskönnun til samgangna og bæjarmála í Vestmannaeyjum sem Eyjar.net lét gera í október 2018.
Vilt þú ná til Eyjamanna?
28.Júní'17Þá er Eyjar.net rétti staðurinn til þess. Sendu okkur línu á auglysingar@eyjar.net - og við aðstoðum þig að finna góða lausn fyrir þig og þitt fyrirtæki.

Smáauglýsingar
Hér getur þú með einföldum hætti auglýst það sem þú þarft að koma á framfæri allt frá einum sólarhring uppí einn mánuð. Einfaldur greiðslumáti Þú greiðir fyrir auglýsinguna með kreditkorti. Verð kr. 500,- per sólarhring. Um auglýsinguna Stutt fyrirsögn, hámark 35 tákn. Hnitmiðaður texti, hámark 130 tákn. Mynd á JPG sniði, verður sköluð í 130x100 díla (pixel).