Davíð afhenti Köku ársins á Bessastöðum
17.Febrúar'17 | 10:25Davíð Arnórsson, bakari hjá Stofan bakhús í Vestmannaeyjum og höfundur Köku ársins 2017, mætti ásamt syni sínum Degi Davíðssyni á Bessastaði í gærmorgun og afhendi frú Elizu Reid fyrstu kökuna.
Forseti Íslands, Guðni Th. Jóhannesson, fékk fyrstu sneiðina af kökunni. Við afhendinguna sagði Davíð frá samsetningu kökunnar sem er lagskipt og inniheldur m.a möndlukókosbotn, hindberjahlaup og skyrfrómas með lime. Þá sagði Jón Albert Kristinsson, formaður Landssambands bakarameistara, LABAK, frá tilurð og framkvæmd keppninnar. Sala á kökunni hefst í bakaríum LABAK um allt land í dag, föstudaginn 17. febrúar og verður til sölu það sem eftir er ársins. Heitið, Kaka ársins, er skrásett vörumerki sem einungis félagsmönnum LABAK er heimilt að nota.
LABAK hefur um árabil efnt til árlegrar keppni um Köku ársins. Keppnin fer þannig fram að keppendur skila inn tilbúnum kökum sem dómarar meta og velja úr þá sem þykir sameina þá kosti að vera bragðgóð, falleg og líkleg til að falla sem flestum í geð og hlýtur hún titilinn Kaka ársins. Keppnin að þessu sinni var haldin í samstarfi við Mjólkursamsöluna og voru gerðar kröfur um að kakan innihéldi skyr frá MS.
Dómarar í keppninni voru Margrét Kristín Sigurðardóttir frá Samtökum iðnaðarins, Aðalsteinn Magnússon, sölustjóri hjá Mjólkursamsölunni, og Gunnar Örn Gunnarsson, bakarameistari og sölumaður hjá Ölgerðinni, segir í tilkynningu.
Vilt þú ná til Eyjamanna?
17.Ágúst'19Þá er Eyjar.net rétti staðurinn til þess. Sendu okkur línu á auglysingar@eyjar.net - og við aðstoðum þig að finna góða lausn fyrir þig og þitt fyrirtæki.

Ég vil gerast félagsmaður í Krabbavörn
17.September'19Hver félagsmaður skiptir félagið miklu máli. Ef þið hafið áhuga á að gerast félagsmenn þá endilega fyllið út eyðublaðið (smelltu hér). Krabbavörn er góðgerðarfélag sem styður við og styrkir þá félagsmenn sem greinast með krabbamein og eiga lögheimili í Vestmannaeyjum. Ár hvert leita u.þ.b. 10 nýir einstaklingar til félagsins eftir styrkjum og um 25 einstaklingar fá einhverskonar fjárstuðning frá félaginu á hverju ári. Árgjaldið er aðeins kr. 2500,-

Fréttaskot - Eyjar.net
31.Janúar'18Ertu með athyglisverða ábendingu eða frétt?
Sendu okkur línu á eyjar@eyjar.net - Fyllsta trúnaðar gætt.

Smáauglýsingar
Hér getur þú með einföldum hætti auglýst það sem þú þarft að koma á framfæri allt frá einum sólarhring uppí einn mánuð. Einfaldur greiðslumáti Þú greiðir fyrir auglýsinguna með kreditkorti. Verð kr. 500,- per sólarhring. Um auglýsinguna Stutt fyrirsögn, hámark 35 tákn. Hnitmiðaður texti, hámark 130 tákn. Mynd á JPG sniði, verður sköluð í 130x100 díla (pixel).