Herjólfur:
Kvöldferðir falla niður - búist við Þorlákshöfn á morgun
24.Nóvember'16 | 18:21Aðstæður versna hratt í Landeyjahöfn, vindur hefur aukist og ölduhæð er á uppleið eins og spá sagði til um. Kvöldferðir Herjólfs falla því niður í kvöld, segir í tilkynningu frá Herjólfi.
Þá segir að gert sé ráð fyrir siglingum til Þorlákshafnar á morgun, föstudag að minnsta kosti fyrri ferð. Brottför frá Vestmannaeyjum klukkan 08:00, mæting kl. 07:30. Brottför frá Þorlákshöfn 11:45.
Tilkynning varðandi siglingar seinnipartinn á morgun verður send út eftir hádegi föstudag. Farþegar sem eiga bókað 08:30/12:45 til/frá Landeyjahöfn færast í ferðir til/frá Þorlákshöfn 08:00/11:45.
Aðrar ferðir færast ekki. Farþegar sem eiga bókað í aðrar ferðir verða að hafa samband við afgreiðslu Herjólfs í síma 481-2800 og láta færa sig í aðrar lausar ferðir.
Farþegum er bent á að skilja ekki bifreiðar eftir í Þorlákshöfn eða Landeyjahöfn þar sem brugðið getur til beggja vona og fólk lent í vandræðum vegna þessa.
Farþegar eru vinsamlegast beðnir að fylgjast með fréttum á herjolfur.is, á facebook síðu Herjólfs og síðu 415 í textavarpi RUV.
Nánari upplýsingar í síma 481-2800.

Ég vil gerast félagsmaður í Krabbavörn
17.September'19Hver félagsmaður skiptir félagið miklu máli. Ef þið hafið áhuga á að gerast félagsmenn þá endilega fyllið út eyðublaðið (smelltu hér). Krabbavörn er góðgerðarfélag sem styður við og styrkir þá félagsmenn sem greinast með krabbamein og eiga lögheimili í Vestmannaeyjum. Ár hvert leita u.þ.b. 10 nýir einstaklingar til félagsins eftir styrkjum og um 25 einstaklingar fá einhverskonar fjárstuðning frá félaginu á hverju ári. Árgjaldið er aðeins kr. 2500,-

Fréttaskot - Eyjar.net
31.Janúar'18Ertu með athyglisverða ábendingu eða frétt?
Sendu okkur línu á eyjar@eyjar.net - Fyllsta trúnaðar gætt.

Mannlíf og saga - hlaðvarp
2.Mars'21Nýtt hlaðvarp/podcast fer í loftið á fimmtudaginn 4. mars nk. Nýr þáttur kemur út á hverjum fimmtudegi og verður hlaðvarpið aðgengilegt á Eyjar.net ásamt helstu veitum svo sem Spotify og Youtube. Fylgstu með...

Smáauglýsingar
Hér getur þú með einföldum hætti auglýst það sem þú þarft að koma á framfæri allt frá einum sólarhring uppí einn mánuð. Einfaldur greiðslumáti Þú greiðir fyrir auglýsinguna með kreditkorti. Verð kr. 500,- per sólarhring. Um auglýsinguna Stutt fyrirsögn, hámark 35 tákn. Hnitmiðaður texti, hámark 130 tákn. Mynd á JPG sniði, verður sköluð í 130x100 díla (pixel).