Ísfélags og Fiskiðjureitur:
Áfram unnið með tillögu Steina og Olla
3.Nóvember'16 | 15:21Í júní s.l. auglýsti Vestmannaeyjabær eftir áhugasömum samstarfsaðilum um fasteignaþróun á Ísfélags- og Fiskiðju-reitnum. Þrír aðilar/hópar lýstu yfir áhuga á að taka þátt í verkefninu og var þeim boðið að senda inn tillögur sbr. bókun ráðsins þann 29 ágúst s.l.
Tveir af þremur hópum skiluðu inn gögnum sem valnefnd hefur nú yfirfarið og liggur álit valnefndar fyrir ráðinu.
Í áliti valnefndar segir: Í ljósi innsendra gagna er lagt til að áfram verði unnið með tillögu B sem barst frá Steina og Olla ehf., en gerðir eru fyrirvarar við ákveðna þætti sem koma þar fram líkt og tímamörk.
Ráðið þakkar þeim aðilum sem sendu inn gögn til valnefndar. Ráðið tekur undir álit valnefndar varðandi tillögu B og felur starfsmönnum umhverfis-og framkvæmdasviðs og formanni ráðsins áframhald málsins, segir í bókun umhverfis- og skipulagsráðs.

Ég vil gerast félagsmaður í Krabbavörn
17.September'19Hver félagsmaður skiptir félagið miklu máli. Ef þið hafið áhuga á að gerast félagsmenn þá endilega fyllið út eyðublaðið (smelltu hér). Krabbavörn er góðgerðarfélag sem styður við og styrkir þá félagsmenn sem greinast með krabbamein og eiga lögheimili í Vestmannaeyjum. Ár hvert leita u.þ.b. 10 nýir einstaklingar til félagsins eftir styrkjum og um 25 einstaklingar fá einhverskonar fjárstuðning frá félaginu á hverju ári. Árgjaldið er aðeins kr. 2500,-

Fréttaskot - Eyjar.net
31.Janúar'18Ertu með athyglisverða ábendingu eða frétt?
Sendu okkur línu á eyjar@eyjar.net - Fyllsta trúnaðar gætt.
Vilt þú ná til Eyjamanna?
17.Ágúst'19Þá er Eyjar.net rétti staðurinn til þess. Sendu okkur línu á auglysingar@eyjar.net - og við aðstoðum þig að finna góða lausn fyrir þig og þitt fyrirtæki.

Smáauglýsingar
Hér getur þú með einföldum hætti auglýst það sem þú þarft að koma á framfæri allt frá einum sólarhring uppí einn mánuð. Einfaldur greiðslumáti Þú greiðir fyrir auglýsinguna með kreditkorti. Verð kr. 500,- per sólarhring. Um auglýsinguna Stutt fyrirsögn, hámark 35 tákn. Hnitmiðaður texti, hámark 130 tákn. Mynd á JPG sniði, verður sköluð í 130x100 díla (pixel).