Tilkynning frá Herjólfi:
Mæla þarf dýpi í Landeyjahöfn
áður en hægt verður að sigla þangað
23.Október'16 | 21:38Herjólfur siglir til Þorlákshafnar mánudaginn 24 október. Mæla þarf dýpi í Landeyjahöfn áður en hægt verður að sigla þangað. Ef dýpi er nægt og aðstæður leyfa þá verður send út tilkynning með breytingu á áætlun.
Herjólfur siglir til Þorlákshafnar
Frá Vestmannaeyjum 08:00 og 15:30, ATH 08:00, mæting 07:30, Frá Þorlákshöfn 11:45 og 19:15
Farþegar sem áttu bókað frá Vestmannaeyjum 08:30 eiga nú bókað klukkan 08:00 ATH 08:00 til Þorlákshafnar.
Farþegar sem áttu bókað frá Landeyjahöfn 12:45 eiga nú bókað frá Þorlákshöfn 11:45.
Farþegar sem áttu bókað frá Vestmannaeyjum 18:45 eiga nú bókað klukkan 15:30 til Þorlákshafnar.
Farþegar sem áttu bókað frá Landeyjahöfn 19:45 eiga nú bókað frá Þorlákshöfn 19:15.
Farþegar sem áttu bókað í aðrar ferðir þurfa að hafa samband við afgreiðslu þar sem þeirra ferð fellur niður og láta færa sig í aðrar lausar ferðir, sími 481-2800 opið frá 08:00 – 19:00.
Farþegar eru vinsamlegast beðnir að fylgjast með fréttum á herjolfur.is, á facebook síðu Herjólfs og síðu 415 í textavarpi RUV. Nánari upplýsingar í síma 481-2800.

Fréttaskot - Eyjar.net
31.Janúar'18Ertu með athyglisverða ábendingu eða frétt?
Sendu okkur línu á eyjar@eyjar.net - Fyllsta trúnaðar gætt.

Ég vil gerast félagsmaður í Krabbavörn
17.September'19Hver félagsmaður skiptir félagið miklu máli. Ef þið hafið áhuga á að gerast félagsmenn þá endilega fyllið út eyðublaðið (smelltu hér). Krabbavörn er góðgerðarfélag sem styður við og styrkir þá félagsmenn sem greinast með krabbamein og eiga lögheimili í Vestmannaeyjum. Ár hvert leita u.þ.b. 10 nýir einstaklingar til félagsins eftir styrkjum og um 25 einstaklingar fá einhverskonar fjárstuðning frá félaginu á hverju ári. Árgjaldið er aðeins kr. 2500,-

Mannlíf og saga - hlaðvarp
2.Mars'21Nýtt hlaðvarp/podcast fer í loftið á fimmtudaginn 4. mars nk. Nýr þáttur kemur út á hverjum fimmtudegi og verður hlaðvarpið aðgengilegt á Eyjar.net ásamt helstu veitum svo sem Spotify og Youtube. Fylgstu með...

Smáauglýsingar
Hér getur þú með einföldum hætti auglýst það sem þú þarft að koma á framfæri allt frá einum sólarhring uppí einn mánuð. Einfaldur greiðslumáti Þú greiðir fyrir auglýsinguna með kreditkorti. Verð kr. 500,- per sólarhring. Um auglýsinguna Stutt fyrirsögn, hámark 35 tákn. Hnitmiðaður texti, hámark 130 tákn. Mynd á JPG sniði, verður sköluð í 130x100 díla (pixel).