Fær bætur vegna líkamsleitar á Þjóðhátíð
6.Október'16 | 22:35Héraðsdómur Reykjavíkur dæmdi ríkið til þess að greiða karlmanni 120 þúsund krónur í miskabætur fyrir líkamsleit á manninum á Þjóðhátíð í Vestmannaeyjum á síðasta ári.
Maðurinn neitaði að heimila lögreglu að leita á sér en fíkniefnahundur var með í för og hafði merkt manninn og gaf þannig til kynna að maðurinn gæti haft fíkniefni í fórum sínum.
Maðurinn reyndist ekki vera með nein fíkniefni á sér heldur 300 spjöld í nafni borgarasamtakanna Snarrótar, sem eru samtök um borgaraleg réttindi.
Maðurinn byggði mál sitt á því að þvingunarráðstafanir lögreglu, þ.e. handtaka og líkamsleit, hefðu verið að ósekju og ólögmætar. Hann taldi sig því eiga rétt á bótum úr hendi ríksins, sem og Héraðsdómur Reykjavíkur viðurkenndi í gær.
Samtökin Snarrót hafa mótmælt handahófskenndum líkamsleitum lögreglu á einstaklingum.
Ríkið hélt því fram að maðurinn ætti ekki rétt á bótum þar sem hann hefði synjað lögreglu um að leita á sér. Því var dómari ósammála og því var ríkinu gert að greiða honum 120 þúsund en maðurinn fór fram á eina milljón í bætur.
Fréttatíminn.is greindi frá.

Fréttaskot - Eyjar.net
31.Janúar'18Ertu með athyglisverða ábendingu eða frétt?
Sendu okkur línu á eyjar@eyjar.net - Fyllsta trúnaðar gætt.

Ég vil gerast félagsmaður í Krabbavörn
17.September'19Hver félagsmaður skiptir félagið miklu máli. Ef þið hafið áhuga á að gerast félagsmenn þá endilega fyllið út eyðublaðið (smelltu hér). Krabbavörn er góðgerðarfélag sem styður við og styrkir þá félagsmenn sem greinast með krabbamein og eiga lögheimili í Vestmannaeyjum. Ár hvert leita u.þ.b. 10 nýir einstaklingar til félagsins eftir styrkjum og um 25 einstaklingar fá einhverskonar fjárstuðning frá félaginu á hverju ári. Árgjaldið er aðeins kr. 2500,-
Vilt þú ná til Eyjamanna?
17.Ágúst'19Þá er Eyjar.net rétti staðurinn til þess. Sendu okkur línu á auglysingar@eyjar.net - og við aðstoðum þig að finna góða lausn fyrir þig og þitt fyrirtæki.

Smáauglýsingar
Hér getur þú með einföldum hætti auglýst það sem þú þarft að koma á framfæri allt frá einum sólarhring uppí einn mánuð. Einfaldur greiðslumáti Þú greiðir fyrir auglýsinguna með kreditkorti. Verð kr. 500,- per sólarhring. Um auglýsinguna Stutt fyrirsögn, hámark 35 tákn. Hnitmiðaður texti, hámark 130 tákn. Mynd á JPG sniði, verður sköluð í 130x100 díla (pixel).