Fleiri enn Eyjamenn hissa á samgöngunum
18.Maí'16 | 13:37Það eru fleiri enn Eyjamenn sem eru ósáttir við að siglingar Herjólfs skerðist líkt og var á sl. sunnudag en þá var Hvítasunnudagur og einungis farnar 3 ferðir. Stuðningsmenn KR eiga í erfiðleikum með að skipuleggja dagsferð til Vestmannaeyja þegar ÍBV tekur á móti KR, laugardaginn 4. júní.
Vefsíðan Fotbolti.net greinir frá en þar segir ennfremur að þennan dag sigli Herjólfur síðustu ferð frá Vestmannaeyjum klukkan 16, einmitt þegar viðureignin á að vera flautuð á.
Fótbolti.net ræddi við ósáttan stuðningsmann KR sem fékk þau svör frá Herjólfi að þar sem sjómannadagurinn sé á sunnudeginum sé breytt áætlun þessa helgi. Það er því ekki hægt fyrir stuðningsmenn KR að fara dagsferð til Eyja og sjá leikinn.
Einhverjir stuðningsmenn KR hafa sent erindi á KSÍ útaf þessu máli en engin svör fengið samkvæmt upplýsingum Fótbolta.net.

Fréttaskot - Eyjar.net
31.Janúar'18Ertu með athyglisverða ábendingu eða frétt?
Sendu okkur línu á eyjar@eyjar.net - Fyllsta trúnaðar gætt.
Vilt þú ná til Eyjamanna?
17.Ágúst'19Þá er Eyjar.net rétti staðurinn til þess. Sendu okkur línu á auglysingar@eyjar.net - og við aðstoðum þig að finna góða lausn fyrir þig og þitt fyrirtæki.

Ég vil gerast félagsmaður í Krabbavörn
17.September'19Hver félagsmaður skiptir félagið miklu máli. Ef þið hafið áhuga á að gerast félagsmenn þá endilega fyllið út eyðublaðið (smelltu hér). Krabbavörn er góðgerðarfélag sem styður við og styrkir þá félagsmenn sem greinast með krabbamein og eiga lögheimili í Vestmannaeyjum. Ár hvert leita u.þ.b. 10 nýir einstaklingar til félagsins eftir styrkjum og um 25 einstaklingar fá einhverskonar fjárstuðning frá félaginu á hverju ári. Árgjaldið er aðeins kr. 2500,-

Smáauglýsingar
Hér getur þú með einföldum hætti auglýst það sem þú þarft að koma á framfæri allt frá einum sólarhring uppí einn mánuð. Einfaldur greiðslumáti Þú greiðir fyrir auglýsinguna með kreditkorti. Verð kr. 500,- per sólarhring. Um auglýsinguna Stutt fyrirsögn, hámark 35 tákn. Hnitmiðaður texti, hámark 130 tákn. Mynd á JPG sniði, verður sköluð í 130x100 díla (pixel).