Fasteignaverð tvöfaldast í Eyjum
11.Mars'16 | 11:48Þegar litið er á þróun fasteignaverðs utan höfuðborgarsvæðisins eru Vestmannaeyjar algerlega í sérflokki þar sem verðið hefur tvöfaldast á síðastliðnum sjö árum. Fermetraverð á Akureyri er um 75% af fermetraverðinu í Reykjavík.
Þetta kemur fram í Hagsjá Hagfræðideildar Landsbankans þar sem litið er á stöðuna á fasteignamarkaðnum utan höfuðborgarsvæðisins.
Þar eru viðskipti að jafnaði mun strjálli og erfiðara er því að fá raunverulegar vísbendingar um verðþróun. Strjál viðskipti leiða til þess að sveiflur í mánaðarlegum verðmælingum eru mun meiri en á höfuðborgarsvæðinu.
Um það bil 64% landsmanna búa á höfuðborgarsvæðinu en tæplega helmingur íbúa utan höfuðborgarsvæðisins býr í 6 stærstu bæjunum, eða um 17% landsmanna. Rúmlega 80% landsmanna býr því á höfuðborgarsvæðinu og í 6 stærstu bæjunum.
Það er Mbl.is sem greinir frá, nánar um málið hér.

Bók Bjarna í Bónus
2.Desember'19Nú er hægt að kaupa bók Bjarna Jónassonar „Að duga eða drepast” í Bónus, Vestmannaeyjum. Að duga eða drepast lýsir lífshlaupi Bjarna Jónassonar, flugmanns og útvarpsstjóra í Vestmannaeyjum.
Allt fasteignir - Fasteignasalan Eldey
27.Október'17Fasteignasalan Eldey Vestmannaeyjum. Sími: 861-8901. Arndís M. Kjartansdóttir löggiltur fasteigna-, fyrirtækja- og skipasali. Goðahrauni 1. disa@alltfasteignir.is / www.alltfasteignir.is. Söluþóknun aðeins 1,1%

Afmælisár Vestmannaeyjabæjar - Dagskrá
15.Apríl'19Í ár fagnar Vestmannaeyjabær 100 ára kaupstaðarafmæli. Af því tilefni er fjölbreytt dagskrá allt árið. Hér má skoða dagskrá ársins.

Ég vil gerast félagsmaður í Krabbavörn
17.September'19Hver félagsmaður skiptir félagið miklu máli. Ef þið hafið áhuga á að gerast félagsmenn þá endilega fyllið út eyðublaðið (smelltu hér). Krabbavörn er góðgerðarfélag sem styður við og styrkir þá félagsmenn sem greinast með krabbamein og eiga lögheimili í Vestmannaeyjum. Ár hvert leita u.þ.b. 10 nýir einstaklingar til félagsins eftir styrkjum og um 25 einstaklingar fá einhverskonar fjárstuðning frá félaginu á hverju ári. Árgjaldið er aðeins kr. 2500,-