Handknattleikur:
Evrópuleikir framundan
26.Nóvember'15 | 13:22ÍBV spilar tvo leiki á móti S.L. Benfica í evrópukeppninni í handbolta um helgina. Fyrri leikurinn er á föstudaginn kl. 20.00 og sá seinni á laugardaginn kl 19.30. Strákarnir æfðu í höllinni í morgun og eru allar aðstæður til fyrirmyndar.
Fyrir þá sem hafa áhuga á að fylgjast með leikjunum þá er rétt að benda á að báðir leikirnir verða í beinni textalýsingu á visir.is. Einnig ætla strákarnir að vera með ÍBV-handbolti snapchatið um helgina.
ibvsport.is.

Bók Bjarna í Bónus
2.Desember'19Nú er hægt að kaupa bók Bjarna Jónassonar „Að duga eða drepast” í Bónus, Vestmannaeyjum. Að duga eða drepast lýsir lífshlaupi Bjarna Jónassonar, flugmanns og útvarpsstjóra í Vestmannaeyjum.

Afmælisár Vestmannaeyjabæjar - Dagskrá
15.Apríl'19Í ár fagnar Vestmannaeyjabær 100 ára kaupstaðarafmæli. Af því tilefni er fjölbreytt dagskrá allt árið. Hér má skoða dagskrá ársins.
Allt fasteignir - Fasteignasalan Eldey
27.Október'17Fasteignasalan Eldey Vestmannaeyjum. Sími: 861-8901. Arndís M. Kjartansdóttir löggiltur fasteigna-, fyrirtækja- og skipasali. Goðahrauni 1. disa@alltfasteignir.is / www.alltfasteignir.is. Söluþóknun aðeins 1,1%

Ég vil gerast félagsmaður í Krabbavörn
17.September'19Hver félagsmaður skiptir félagið miklu máli. Ef þið hafið áhuga á að gerast félagsmenn þá endilega fyllið út eyðublaðið (smelltu hér). Krabbavörn er góðgerðarfélag sem styður við og styrkir þá félagsmenn sem greinast með krabbamein og eiga lögheimili í Vestmannaeyjum. Ár hvert leita u.þ.b. 10 nýir einstaklingar til félagsins eftir styrkjum og um 25 einstaklingar fá einhverskonar fjárstuðning frá félaginu á hverju ári. Árgjaldið er aðeins kr. 2500,-