Dagbók lögreglunnar:
Bar út áfengi í poka
- Vertinn á von á sekt
2.Nóvember'15 | 16:05Vikan var með rólegra móti hjá lögreglu fyrir utan hin hefðbundun verkefni sem felast m.a. í því að aðstoða borgarana eftir fremsta megni. Skemmtanahald helgarinnar fór ágætlega fram en eitthvað var þó um útköll á öldurhúsin vegna fólks sem annaðhvort var til vandræða eða vegna annarra atvika, sem ekki er ástæða til að tíunda hér.
Um liðna helgi var tilkynnt um þjófnað á afturstuðara af Subaru Impreza, stuðarinn var reyndar ekki á bifreiðinni þegar honum var stolið. Talið er að þjófnaðurinn hafi átt sér stað sl. föstudag eða laugardag þar sem stuðarinn var við Vestmannabraut 57.
Að kvöldi sl. föstudags urðu lögreglumenn í eftirliti varir við að aðili var að bera út poka af einum af öldurhúsum bæjarins. Við nánari athugun reyndist áfengi vera í pokanum sem aðilinn kvaðst hafa keypt inni á veitingastaðnum. Má vert staðarins búast við sekt vegna atviksins.
Lögreglan vill minna gangandi vegfarendur á endurskinsmerkin og þá sérstaklega foreldra og forráðamenn barna á að láta börn sín vera með endurskinsmerki, núna þegar svartasta skammdegið fer í hönd.
Allt fasteignir - Fasteignasalan Eldey
27.Október'17Fasteignasalan Eldey Vestmannaeyjum. Sími: 861-8901. Arndís M. Kjartansdóttir löggiltur fasteigna-, fyrirtækja- og skipasali. Goðahrauni 1. disa@alltfasteignir.is / www.alltfasteignir.is
Viðhorfskönnun til samgangna og bæjarmála
2.Nóvember'18Áhugavert efni - Hér getur þú skoðað viðhorfskönnun til samgangna og bæjarmála í Vestmannaeyjum sem Eyjar.net lét gera í október 2018.
Vilt þú ná til Eyjamanna?
28.Júní'17Þá er Eyjar.net rétti staðurinn til þess. Sendu okkur línu á auglysingar@eyjar.net - og við aðstoðum þig að finna góða lausn fyrir þig og þitt fyrirtæki.

Fréttaskot - Eyjar.net
31.Janúar'18Ertu með athyglisverða ábendingu eða frétt?
Sendu okkur línu á eyjar@eyjar.net - Fyllsta trúnaðar gætt.