Þingmenn heimsækja Heimaey
27.September'15 | 18:22Næsta vika er kjördæmavika hjá Alþingi og verða þingmenn kjördæmisins í Eyjum á morgun, mánudag ef fært verður í Landeyjahöfn samkvæmt heimildum Eyjar.net.
Ekki er nákvæmlega vitað hvernig dagskrá þingmannana lítur út í heimsókninni fyrir utan að þeir verða í Eldheimum eftir hádegi á morgun. Þar hitta þeir væntanlega bæjarfulltrúa Eyjanna. Fastlega má búast við að samgöngumálin við Vestmannaeyjar beri á góma í heimsókninni og þá hvernig menn sjá fyrir sér næstu skref í Landeyjahöfn og ferju til að þjónusta Heimaey.

Mannlíf og saga - hlaðvarp
2.Mars'21Fylgstu með hlaðvarpinu Mannlíf og saga. Nýr þáttur kemur út á hverjum fimmtudegi og er hlaðvarpið aðgengilegt hér á Eyjar.net og einnig á helstu veitum, svo sem Spotify. Sjá nánar hér...
Má bjóða þér að auglýsa hér?
23.Júní'22Hér má auglýsa allt milli himins og jarðar! Sendu línu á auglysingar@eyjar.net og saman finnum við lausn sem hentar þér.

Fáðu nýjustu fréttirnar beint í æð
10.September'18Með því að fylgja Eyjar.net færðu nýjustu fréttirnar frá Eyjum beint í æð. Smelltu hér til að fara á facebook-síðu Eyjar.net.