Ábending/viðvörun til farþega Herjólfs:
Hækkandi ölduspá
seinnipart mánudags og á þriðjudaginn
7.Júní'15 | 19:45Ábending/viðvörun til farþega Herjólfs vegna 8. og 9. júní 2015. Farþegum er bent á að ölduspá gerir ráð fyrir hækkandi öldu seinnipart mánudags og á þriðjudaginn, að því er fram kemur í tilkynningu frá Herjólfi.
Ef útlit er fyrir að það verði ófært til Landeyjahafnar verður siglt til Þorlákshafnar. Stefnt er að því að sigla fulla áætlun til Landeyjahafnar en í ljósi ölduspáar gæti þurft að fella niður og/eða færa ferð/ferðir. Nánar um það síðar ef til þess kemur.
Ef gera þarf breytingu á áætlun munum við senda út tilkynningu, að öðrum kosti munum við sigla samkvæmt áætlun.
Farþegar eru vinsamlega beðnir að fylgjast með fréttum á herjolfur.is, facebook síðu herjólfs og síðu 415 í Textavarpi RUV.
Minnum farþega á að þeir sem eiga bókað í ferðir frá Vestmannaeyjum kl.08:30 og 18:30 og frá Landeyjahöfn kl. 09:45 og 19:45 eiga forgang í ferðir í Þorlákshöfn ef Herjólfur þarf að sigla þangað.
Nánari upplýsingar í síma 481-2800.

Fréttaskot - Eyjar.net
31.Janúar'18Ertu með athyglisverða ábendingu eða frétt?
Sendu okkur línu á eyjar@eyjar.net - Fyllsta trúnaðar gætt.
Vilt þú ná til Eyjamanna?
28.Júní'17Þá er Eyjar.net rétti staðurinn til þess. Sendu okkur línu á auglysingar@eyjar.net - og við aðstoðum þig að finna góða lausn fyrir þig og þitt fyrirtæki.
Allt fasteignir - Fasteignasalan Eldey
27.Október'17Fasteignasalan Eldey Vestmannaeyjum. Sími: 861-8901. Arndís M. Kjartansdóttir löggiltur fasteigna-, fyrirtækja- og skipasali. Goðahrauni 1. disa@alltfasteignir.is / www.alltfasteignir.is
Viðhorfskönnun til samgangna og bæjarmála
2.Nóvember'18Áhugavert efni - Hér getur þú skoðað viðhorfskönnun til samgangna og bæjarmála í Vestmannaeyjum sem Eyjar.net lét gera í október 2018.