Seinni ferð Herjólfs fellur niður
4.Mars'15 | 14:53Seinni ferð Herjólfs fellur niður vegna veðurs 28m/s og 36 m/s í hviðum. Herjólfur er nú á leið til Eyja og er áætlaður komutími til Eyja núna m.v. núverandi siglingahraða 17:45.
Spáin er ekki góð fyrir morgundaginn en þó er enn stefnt að því að sigla skv. áætlun en ef gera þarf breytingu á áætlun munum við senda út tilkynningu um kl. 7 í fyrramálið
Farþegar eru vinsamlega beðnir að fylgjast með fréttum á herjolfur.is, facebook síðu herjólfs og síðu 415 í Textavarpi RUV.
Nánari upplýsingar í síma 481-2800.
Ölduspá:
http://www.vegagerdin.is/vs/ArealKort.aspx
Veðurspá:
http://www.vedur.is/vedur/spar/thattaspar/sudurland/

Afmælisár Vestmannaeyjabæjar - Dagskrá
15.Apríl'19Í ár fagnar Vestmannaeyjabær 100 ára kaupstaðarafmæli. Af því tilefni er fjölbreytt dagskrá allt árið. Hér má skoða dagskrá ársins.

Ég vil gerast félagsmaður í Krabbavörn
17.September'19Hver félagsmaður skiptir félagið miklu máli. Ef þið hafið áhuga á að gerast félagsmenn þá endilega fyllið út eyðublaðið (smelltu hér). Krabbavörn er góðgerðarfélag sem styður við og styrkir þá félagsmenn sem greinast með krabbamein og eiga lögheimili í Vestmannaeyjum. Ár hvert leita u.þ.b. 10 nýir einstaklingar til félagsins eftir styrkjum og um 25 einstaklingar fá einhverskonar fjárstuðning frá félaginu á hverju ári. Árgjaldið er aðeins kr. 2500,-
Allt fasteignir - Fasteignasalan Eldey
27.Október'17Fasteignasalan Eldey Vestmannaeyjum. Sími: 861-8901. Arndís M. Kjartansdóttir löggiltur fasteigna-, fyrirtækja- og skipasali. Goðahrauni 1. disa@alltfasteignir.is / www.alltfasteignir.is. Söluþóknun aðeins 1,1%

Bók Bjarna í Bónus
2.Desember'19Nú er hægt að kaupa bók Bjarna Jónassonar „Að duga eða drepast” í Bónus, Vestmannaeyjum. Að duga eða drepast lýsir lífshlaupi Bjarna Jónassonar, flugmanns og útvarpsstjóra í Vestmannaeyjum.