Ólína efast um rökstuðning Vinnslustöðvarinnar
28.Júní'12 | 14:23„Það er alveg viðbúið að menn fari nú að skella skuldinni á veiðigjaldið, frekar en að taka ábyrgð á eigin rekstrarákvörðunum og fjárfestingum." Þetta segir Ólína Þorvarðardóttir, þingmaður Samfylkingarinnar og varaformaður umhverfis- og samgöngunefndar Alþingis.
Greint hefur verið frá því að Vinnslustöðin í Vestmannaeyjum hafi ákveðið að segja upp 41 starfsmanni. Þá verður uppsjávarveiðiskipið Gandí VE sett á söluskrá.
Í fréttatilkynningu frá Vinnslustöðinni kemur fram að ekki ætti að koma á óvart að til slíkra tíðinda drægi: „Allra síst stjórnvöldum landsins og alþingismönnum sem samþykktu nú síðast stórhækkun veiðigjalda þvert á viðvaranir úr öllum áttum," segir í tilkynningunni.
Ólína efast um þennan rökstuðning Vinnslustöðvarinnar. Þá telur hún að félagið beini spjótum sínum að breytingu á veiðigjöldum til að færa rök fyrir niðurskurði í starfsrekstri.
Þá hafi kaup fyrirtækisins á uppsjávarveiðiskipinu Gandí VE ekki skilað þeim árangri sem stjórnendur fyrirtækisins hafi vænst enda hafi forsendur breyst í uppsjávarveiðum. „Nú þurfa þeir að draga saman seglin og endurskoða þessa ákvörðun," segir Ólína.
„Þetta er fyrirtæki sem greiddi sér og eigendum sínum veglegan arð á síðustu árum, meir að segja á tímum þegar framlegð í sjávarútvegi var lítil."
„Ég held að við megum búast við fréttum af þessu tagi," segir Ólína. „Þegar menn fara að leiðrétta eigin rekstrarákvarðanir og beita síðan fyrir sér veiðigjaldinu sem skýringu."
Viðhorfskönnun til samgangna og bæjarmála
2.Nóvember'18Áhugavert efni - Hér getur þú skoðað viðhorfskönnun til samgangna og bæjarmála í Vestmannaeyjum sem Eyjar.net lét gera í október 2018.
Allt fasteignir - Fasteignasalan Eldey
27.Október'17Fasteignasalan Eldey Vestmannaeyjum. Sími: 861-8901. Arndís M. Kjartansdóttir löggiltur fasteigna-, fyrirtækja- og skipasali. Goðahrauni 1. disa@alltfasteignir.is / www.alltfasteignir.is
Vilt þú ná til Eyjamanna?
28.Júní'17Þá er Eyjar.net rétti staðurinn til þess. Sendu okkur línu á auglysingar@eyjar.net - og við aðstoðum þig að finna góða lausn fyrir þig og þitt fyrirtæki.

Fréttaskot - Eyjar.net
31.Janúar'18Ertu með athyglisverða ábendingu eða frétt?
Sendu okkur línu á eyjar@eyjar.net - Fyllsta trúnaðar gætt.
Vinnslustöðin hf. segir upp 41 starfsmanni til sjós og lands og setur Gandí VE á söluskrá
ÍBV - Valur tímasetning og yfirlýsing