Fréttatilkynning frá Slökkviliði Vestmannaeyja og Björgunarfélagi Vestmannaeyja
5.Apríl'09 | 18:41Við hörmum að þeir einstaklingar, sem nú hafa játað aðild sína að brunanum s.l. miðvikudag og með okkur störfuðu, skuli hafa brugðist því mikla trausti sem borið var til þeirra í störfum sínum.
Hvað varðar umræðu undanfarna daga um stöðu umræddra einstaklinga innan félaganna, þá var ákveðið að aðhafast ekkert fyrr en málið hefði skýrst og ákveðnar staðreyndir lægju fyrir. Í framhaldi af játningu þeirra og lausn úr varðhaldi óskaði sá sem tengdur er báðum félögunum eftir því að verða leystur frá skyldum sínum sem slökkviliðsmaður og meðlimur í Björgunarfélagi Vestmannaeyja. Þá hefur hinn einstaklingurinn ákveðið að hætta í nýliðaþjálfun hjá Björgunarfélaginu. Með þessu teljum við lokið frekari aðkomu og umræðu okkar um málið í fjölmiðlum.
Það er von okkar að umræddir atburðir hafi ekki rýrt traust almennings á slökkviliðinu og björgunarfélaginu. Við teljum mikilvægt að viðhalda góðu samstarfi við fyrirtæki og einstaklinga og vonum að sá mikli velvilji sem okkur hefur verið sýndur undanfarin ár haldist óbreyttur.

Ég vil gerast félagsmaður í Krabbavörn
17.September'19Hver félagsmaður skiptir félagið miklu máli. Ef þið hafið áhuga á að gerast félagsmenn þá endilega fyllið út eyðublaðið (smelltu hér). Krabbavörn er góðgerðarfélag sem styður við og styrkir þá félagsmenn sem greinast með krabbamein og eiga lögheimili í Vestmannaeyjum. Ár hvert leita u.þ.b. 10 nýir einstaklingar til félagsins eftir styrkjum og um 25 einstaklingar fá einhverskonar fjárstuðning frá félaginu á hverju ári. Árgjaldið er aðeins kr. 2500,-

Fréttaskot - Eyjar.net
31.Janúar'18Ertu með athyglisverða ábendingu eða frétt?
Sendu okkur línu á eyjar@eyjar.net - Fyllsta trúnaðar gætt.
Vilt þú ná til Eyjamanna?
17.Ágúst'19Þá er Eyjar.net rétti staðurinn til þess. Sendu okkur línu á auglysingar@eyjar.net - og við aðstoðum þig að finna góða lausn fyrir þig og þitt fyrirtæki.

Smáauglýsingar
Hér getur þú með einföldum hætti auglýst það sem þú þarft að koma á framfæri allt frá einum sólarhring uppí einn mánuð. Einfaldur greiðslumáti Þú greiðir fyrir auglýsinguna með kreditkorti. Verð kr. 500,- per sólarhring. Um auglýsinguna Stutt fyrirsögn, hámark 35 tákn. Hnitmiðaður texti, hámark 130 tákn. Mynd á JPG sniði, verður sköluð í 130x100 díla (pixel).