Þórlindur Kjartansson nýkjörinn formaður SUS
16.September'07 | 19:22Þórlindur Kjartansson var kjörinn formaður Sambands ungra sjálfstæðismanna með 90,5 prósent atkvæða á sambandsþingi ungra sjálfstæðismanna á Seyðisfirði í dag. Alls greiddu 171 ungir sjálfstæðismenn atkvæði á þinginu og hlaut Þórlindur 152 atkvæði.
Teitur Björn Einarsson var kjörinn fyrsti varaformaður og hlaut hann 129 atkvæði.
Sjálfkjörið var í öll stjórnarsæti. 26 taka sæti í stjórn og 15 í varastjórn. Þá var í gær samþykkt sú breyting á lögum S.u.s. að formenn kjördæmasamtaka, eða fulltrúar stjórna þeirra, hafa sæti í stjórn sambandsins.

Ég vil gerast félagsmaður í Krabbavörn
17.September'19Hver félagsmaður skiptir félagið miklu máli. Ef þið hafið áhuga á að gerast félagsmenn þá endilega fyllið út eyðublaðið (smelltu hér). Krabbavörn er góðgerðarfélag sem styður við og styrkir þá félagsmenn sem greinast með krabbamein og eiga lögheimili í Vestmannaeyjum. Ár hvert leita u.þ.b. 10 nýir einstaklingar til félagsins eftir styrkjum og um 25 einstaklingar fá einhverskonar fjárstuðning frá félaginu á hverju ári. Árgjaldið er aðeins kr. 2500,-

Bók Bjarna í Bónus
2.Desember'19Nú er hægt að kaupa bók Bjarna Jónassonar „Að duga eða drepast” í Bónus, Vestmannaeyjum. Að duga eða drepast lýsir lífshlaupi Bjarna Jónassonar, flugmanns og útvarpsstjóra í Vestmannaeyjum.

Afmælisár Vestmannaeyjabæjar - Dagskrá
15.Apríl'19Í ár fagnar Vestmannaeyjabær 100 ára kaupstaðarafmæli. Af því tilefni er fjölbreytt dagskrá allt árið. Hér má skoða dagskrá ársins.
Allt fasteignir - Fasteignasalan Eldey
27.Október'17Fasteignasalan Eldey Vestmannaeyjum. Sími: 861-8901. Arndís M. Kjartansdóttir löggiltur fasteigna-, fyrirtækja- og skipasali. Goðahrauni 1. disa@alltfasteignir.is / www.alltfasteignir.is. Söluþóknun aðeins 1,1%