Þjóðhátíðargestir byrjaðir að streyma til eyja.
1.Ágúst'07 | 20:33Hjá Hannesi Kristni Sigurðssyni hjá Flugfélagi Íslands fengust þær upplýsingar að um 1000 farþegar eiga bókað til eyja frá deginum í dag og fram á sunnudag og á mánudaginn er stefnt að því að koma þeim fjölda heim á ný.
Á morgun verða fjórar vélar, tíu vélar á föstudag, tvær á laugardag og fjórar vélar á sunnudag. Örfá sæti eru laus til eyja á föstudag og sunnudag en upp pantað er frá eyjum á mánudag.
Þegar örtröðin verður sem mest hjá starfsmönnum Flugfélagsins þá má gera ráð fyrir því að fimmtán mínútur verði milli véla en að meðaltali á föstudaginn kemur vél á klukkutímafresti. Hannes Kristinn sagðist vera með einvalalið af hraustum peyjum á þessari þjóðhátíð í vinnu og væri þeir með sjö til átta starfsmenn eftir umferð flugvéla.

Fréttaskot - Eyjar.net
31.Janúar'18Ertu með athyglisverða ábendingu eða frétt?
Sendu okkur línu á eyjar@eyjar.net - Fyllsta trúnaðar gætt.

Mannlíf og saga - hlaðvarp
2.Mars'21Nýtt hlaðvarp/podcast fer í loftið á fimmtudaginn 4. mars nk. Nýr þáttur kemur út á hverjum fimmtudegi og verður hlaðvarpið aðgengilegt á Eyjar.net ásamt helstu veitum svo sem Spotify og Youtube. Fylgstu með...

Ég vil gerast félagsmaður í Krabbavörn
17.September'19Hver félagsmaður skiptir félagið miklu máli. Ef þið hafið áhuga á að gerast félagsmenn þá endilega fyllið út eyðublaðið (smelltu hér). Krabbavörn er góðgerðarfélag sem styður við og styrkir þá félagsmenn sem greinast með krabbamein og eiga lögheimili í Vestmannaeyjum. Ár hvert leita u.þ.b. 10 nýir einstaklingar til félagsins eftir styrkjum og um 25 einstaklingar fá einhverskonar fjárstuðning frá félaginu á hverju ári. Árgjaldið er aðeins kr. 2500,-

Smáauglýsingar
Hér getur þú með einföldum hætti auglýst það sem þú þarft að koma á framfæri allt frá einum sólarhring uppí einn mánuð. Einfaldur greiðslumáti Þú greiðir fyrir auglýsinguna með kreditkorti. Verð kr. 500,- per sólarhring. Um auglýsinguna Stutt fyrirsögn, hámark 35 tákn. Hnitmiðaður texti, hámark 130 tákn. Mynd á JPG sniði, verður sköluð í 130x100 díla (pixel).