Sumardagurinn fyrsti á fimmtudaginn
- frítt í sundlaugina og frítt á öll söfn bæjarins í tilefni sumardagsins fyrsta
17.Apríl'18 | 11:28Sumardagurinn fyrsti er á fimmtudaginn. Að venju er dagurinn haldinn hátíðlegur hér í Eyjum líkt og annarsstaðar. Ýmislegt er á dagkránni, meðal annars verður tilkynnt er um val á bæjarlistamanni Vestmannaeyja. Annars má sjá dagskrána hér að neðan.
Einarsstofa kl. 11.00
Skólalúðrasveitin leikur vel valin lög.
Sigurvegarar Stóru upplestrarkeppninnar, þau Herborg Sindradóttir, Sara Dröfn Ríkharðsdóttir og Jón Grétar Jónasson lesa ljóð sem þau völdu sjálf, eftir Þórarinn Eldjárn.
Tilkynnt um val á bæjarlistamanni Vestmannaeyja 2018.
Einarsstofa kl. 13.00
Nemendur Bjarteyjar Gylfadóttur í myndlistarvali Grunnskóla Vestmannaeyja í 8.-10. bekk sýna lokaverkefni sín í Einarsstofu 19. apríl – 3. maí. Sýningin mun opna sumardaginn fyrsta, þann 19. apríl, klukkan 13.00. Í lokaverkefnum velja nemendur sér viðfangsefni að eigin vali og læra að útfæra það á skapandi hátt.
Vestmannaeyjabær býður bæjarbúum frítt í sundlaugina og frítt á öll söfn bæjarins í tilefni sumardagsins fyrsta. Opið í Sagnheimum og Sæheimum frá 13.00-16.00 og í Eldheimum frá 13.00-17.00. Opið er í sundlauginni frá 09.00-17.00.
Vestmannaeyjabær óskar bæjarbúum gleðilegs sumars!

ÚV á FM 104
15.Febrúar'18Góð tónlist flesta laugardaga og sunnudaga frá 16:00. Einnig eru pistlar frá Nice. ÚV á FM 104

Liðakeppnin í snóker
20.Apríl'18Um helgina er liðakeppni í snóker haldin hér í Eyjum. Hægt er að fylgjast með gangi mála hér.
Allt fasteignir - Fasteignasalan Eldey
27.Október'17Fasteignasalan Eldey Vestmannaeyjum. Sími: 861-8901. Arndís M. Kjartansdóttir löggiltur fasteigna-, fyrirtækja- og skipasali. Goðahrauni 1. disa@alltfasteignir.is / www.alltfasteignir.is